Gleðilegt ár góðu vinir!
Jæja nú gerir mamman þriðju ef ekki fjórðu tilraunina á að skrifa um það sem undan hefur gengið síðustu mánuði. Hún hefur a.m.k. vit á að gera þetta í wordinu núna & afrita yfir á Barnalandið, þannig að það þurrkist ekki út allt sem hún hefur skrifað!
Mamman byrjaði að vinna á leikskólanum Baugi í ágúst & byrjaði Embla Guðrún í leikskólanum nokkrum dögum síðar. Pabbinn tók aðlögunina & gekk hún ótrúlega vel. Embla Guðrún unir sér vel í leikskólanum & er algjört “leikskólabarn”. Elskar að vera að leika með krökkunum. Hún byrjaði að ganga í byrjun október en þá var hún búin að ganga á hnjánum, eins & Ragnar Reykháls í nokkrar vikur. Mamman var mjög fegin þegar daman fór að ganga þar sem hún var orðin ansi fljót að slíta upp sokkabuxunum sínum & komin með sigg á hnén ;0)
13.september átti Embla Guðrún afmælið & héldum við upp á það með prompi & prakt í nýju íbúðinni okkar. En við fluttum í byrjun september yfir í Breiðholtið & líkar mjög vel hérna í Seljunum. Róleg & góð gata, góður garður & móinn hér rétt fyrir aftan okkur. Fullt af leikvöllum, þannig að það verður nóg um að vera þegar byrjar að vora. Krakkarnir eru enn í leikskólanum okkar í Kópavogi enda stutt í að Daníel Örn byrji í skóla. Tók því ekki að vera að aðlaga hann að nýjum leikskóla áður en skólagangan hefst. Óþarfa rót að mati foreldranna. Vonum að hann fari að hitta krakka hér í hverfinu með sumrinu sem hann vingast við. Það er reyndar stelpa í húsinu hliðina á okkur sem er hálfu ári yngri en hann, 2006 módel. Erum aðeins búin að heilsa upp á hana en eigum enn eftir að banka upp á & biðja hana um að leika. Á meðan fær Daníel Örn að fara heim með Emil, Jóhanni Pétri & Viktori eftir leikskóla annars lagið & þeir að koma hingað. Annars er Daníel Örn ánægður hér í Breiðholtinu & sáttastur við að nú er hægt að hafa rennibraut á rúminu sínu & Embla Guðrún fékk sér herbergi.
Embla Guðrún er farin að spjalla á fullu & síðasta mánuðinn hefur hún tekið þvílíkt þroskastökk. Skilur mjög mikið af því sem maður segir & biður hana um & svo er eins & hún hafi gleypt orðabók. Fyrstu orðin hennar voru: mamma, pabba, ava, amma, bæ, hæ, kanína (uppáhalds bangsinn sem hún skilur ekki við sig) & banana (allir ávextir). En eins & ég segi er hún farin að tala meira núna & byrjaði hún að syngja rétt fyrir jólin. Krúttlegast í heimi.
Á jólunum vorum við í Birkihvammi ásamt ömmu & afa, Svanhvíti & Einari & fjölskyldu. Það var voða notalegt nema fyrir þær sakir að Embla Guðrún fékk hita klukkan 4 & var voða slöpp í matnum & vildi bara sitja hjá mömmu sinni. En hún hresstist þegar verið var að opna pakkana enda stíllinn þá farinn að virka. Krakkarnir voru ótrúlega ánægð með gjafirnar sínar en Embla Guðrún auðvitað ekki alveg að fatta þetta. Daníel Örn fékk m.a. bækur, dvd disk, fjarstýrðan trukk, dikital myndavél (frá okkur foreldrunum), hermenn, föt, pet shop, & lego. Embla Guðrún fékk föt, handsmíðaðan vagn & dúkku, bækur, talandi bangsa (frá okkur foreldrunum), þroskaleikföng o.fl. Takk fyrir okkur!
Þetta eru helstu fréttirnar af okkur hér í Breiðholtinu. Foreldrarnir fóru jú til Boston í 5 daga & voru krakkarnir í Birkihvammi hjá ömmu & afa á meðan. Gekk eins & í sögu fyrir utan að Embla Guðrún fékk í eyrun. Hún fékk svo aftur í eyrun nokkrum vikum síðar þannig að nú eigum við pantaðan tíma hjá Einari Toroddsen & ætlum við að athuga hvort ekki þurfi að taka nefkirtlana & setja rör, svona miðað við fjölskyldusögu. Soffíu barnalækni finnst það líklegt.
En látum þetta nægja af fréttum af okkur í bili. Yfir & út!