Velkomin á heimasíðuna okkar

Við heitum Daníel Örn & Embla Guðrún

Við erum systkinin Daníel Örn< & Embla Guðrún. Daníel Örn kom í heiminn þann 17.maí 2005, klukkan 19:25 & mældist tæpir 15 merkur & 54 cm. Embla Guðrún fæddist 13.september 2009 & var öllu þéttari en bróðir sinn eða 18 merkur & 52,2 cm.

Foreldrar okkar eru Margrét Hlín sem er leikskólakennari en pabbi minn heitir Brynjólfur Sveinn & er á samning sem pípari. Öll búum við í Kópavogi.



Barn í nautsmerki
Barn í nautsmerkinu er í góðu jafnvægi og einbeitt og tekur sér tíma til að gera hlutina og flýtir sér hægt. Þetta er barn sem skilur og metur ferlið sem slíkt. Barn í nautsmerkinu hefur ánægju af því að hugsa um hluti og sýnir staðfestu í nálgun þess. Raunsæi og að hlutirnir séu raunhæfir er stór hluti af þeirra ákvarðanatöku. Þegar þú útskýrir hluti fyrir barni í nautsmerki þá er alls ekki nóg að segja ?þetta er bara svona?. Þetta barn hefur þörf fyrir að skilja af hverju hlutirnir eru eins og þeir eru og hver lógíkin er á bak við reglurnar sem því eru settar, annars getur það ekki fylgt reglunum. Þetta hljómar sem mikil vinna en leiðir af sér vel aðlagað barn í góðu jafnvægi. Annað sem ber að hafa í huga, er þörf barns í þessu merki fyrir snertingu og ástúð. Þú getur aldrei knúsað þetta barn of mikið. Þetta barn er einnig mikið fyrir fjölskyldulíf og er góð húshjálp. Oft er þetta litla aðsoðarmanneskjan þín og vill gera allt eins og mamma og pabbi. Barn í nautsmerkinu er sælkeri og þú getur búist við að það eyði miklum tíma í eldhúsinu við að elda og borða. Nautið er þrjóskt að eðlisfari og mjög erfitt er að fá það til að skipta um skoðun ef það hefur fengið einhverja flugu í kollinn. Annað ríkt einkenni er þolinmæði og þrautseigja sem gerir barn í nautsmerki að góðum námsmanni og sigurvegara.




Barn í Meyju
Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.






Adam Elías & Elín frændi okkar & frænka



Guðmundur Bjarki frændi okkar



Brynja Dögg
frænka okkar




Aron Máni, Tilda, Indra & Lennon



Aron Sveinn frændi okkar



Birgir Goði & Líf Indíana frændsystkini okkar



Camilla Dagbjört, Thelma Marín & Eva Karítas vinkonur okkar



Elísa Margrét



Ella María


Gabríella Kamí & Anika Rós vinkonur okkar



Guðrún Edda Min Harðardóttir



Guðrún Inga & Ívar Páll vinir okkar



Guðrún vinkona mín



Hektor Óli & litli bróðir hans



Styrmir Snær vinur okkar



Sunna Kristín vinkona okkar



Viktor Már & Bjarki Freyr vinir okkar